Lýsing
Vörulýsing:
Vísindalegt nafn: Phacelia tanacetifolia
Lífrænt ræktað fræ
Tegundar lýsing
Einær.
Hunangsurt er kannski fyrst og fremst gagnlegt sem jarðargróður milli annara sáninga til að koma í veg fyrir leka næringarefna eftir uppskeru.
Einnig mikils virði þar sem óskað er eftir skjótri jarðvegsþekju.
Vex í flestum jarðvegi en krefst mikils áburðar ef á að gefa eh af sér.
Hefur tiltölulega sterka stoðrót og mikið af hliðarrótum. Þroskast best í léttum jarðvegi.
Eldri plöntur skrælna en samt er mjög auðvelt að tæta/vinna niður.
Skrælnaðar plöntur veita góða uppbyggingu jarðvegs ásamt niturbindandi grænmykjuplöntum við jarðvinnslu.
Vex vel jafnvel við lágan hita á haustin. Þolir 5-8 mínus gráður.
Sjálsáir sér að litlu leit en verður þó aldrei óviðráðanleg.
Fullvaxnar plöntur eru ekki étnar af húsdýrum vegna hás trefjainnihalds.
Hefur lélegan endurvöxt.
Er ein gjöfulasta jurt fyrir býflugur bæði sem mjög góður nektargjafi, nokkuð góður frjógjafi.
Ræktun:
Heppilegast að sá í maí
Fræmagn: ca 100-120 g/100m2
Sáddýpt: ca 1 cm. rakað yfir og þjappað
Hæð: 60-80 cm
Blómstrar 8 vikum eftir sáningu og fram í hörð frost.
1 g = um 500-700 fræ
Selt í 100 g pakkningum
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.