Engar greinar sláist í búið eða annað sem getur truflað búið.
B. Fylgjast með þegar hreinsunarflug verður… ekki ráðlagt að trufla bú fyrr en hreinsunarflug hefur átt sér stað.
Hreinn botn settur undir búið…
C. Fyrsta skoðun í apríl- maí við gott veður >12°C.
Fyrsta skoðun (eftir hreinsunarflug): Er búið lifandi? Leitið eftir hita á/undir lokinu.
Athuga varlega fóðurástand ef tómir rammar í göflum má setja fóðurramma í staðinn.
Fóðra ef þörf er á (Bifor, Apifonda,Neopollen, FeedBee eða þurrsykur).
D. Hreinn botn settur undir búið ef ekki þegar kominn hreinn botn:
Taka með kassa/þak til að setja búið á.
Hreinnann botn/sótthreinsaðan með VirkonS.
Lyftið varlega þakinu og ath hvort líf sé í búinu.
Lyftið búinu yfir á kassann/þakið.
Ath hvort vanti fóður (þyngd búsins)?
Setjið hreinan botn þar sem búið á að standa.
Setjið búið á hreina botninn.
E. Skoðun framhald: maí-júní.
Finnið hitann á lokinu. Mikill hiti- stórt bú.
Nóg fóður? (Lyftið ekki upp ungviðarömmum nema útihitastig 12-5°C).
Fóðra ef þörf er á.
Setja druntaramma í búið. Hvað er druntarammi? Rammi með smá ”rönd” af vaxi efst. Þernurnar byggja síðan druntahólf niður af vaxinu. Drottningin vill verpa druntaeggjun.
Lyftið upp tómum fóðurramma frá gafli kassans.
Leitið varlega að fyrsta ramma með ungviði (sá rammi sem mest af býfl situr á).
Setjið druntaramman næst við 1. ramma með ungviði.
Setjið hina rammana aftur til baka.
F. Framhaldsskoðanir að sumri.
Farið vel í gegnum búið. Minnst 12- 15ºC í skugga.
Egg? Ungviði? Druntahólf? Frjókorn? Fóður?
Bæta við kassa, ef þarf, passa að ekki þrengist verulega að búinu.
Skoða í búin 7 hvern dag.
G. Fóðra m frjódegi: maí -júní.
Fjarlægið þak og klæðningu undir.
Skerið fóðrið í þunnar ræmur, eða fletjið út frjódeigið með kökukefli eins þunnt og leggið ofan á rammanna. einnig hægt að setja á botn búsins.
Setjið lokið og net/plastfilmu/annað yfir til að halda hita.
Lokið búinu og festið tryggilega.
H. Endur teknar skoðanir í júní-júlí
Bæta við kössum 2-3 á þessum tíma allt eftir þörfum.
Leita eftir drottningahólfum (ætlar búið að sverma)!
Hugsanlega fyrsta uppskera.
Búa til afleggjara.
I. Júlí- ágúst
Aukakassa eftir þörfum.
Leitið eftir drottningahólfum –svermur !
2. uppsker ef stórt bú.
Fylgjast með hvort nægt fóður berst í búið.
J. Ágúst -september
Verið örugg um að frjó drottning sé í búinu.
Seinustu tök á uppskeru er í byrjun september.
Fóðrið strax að lokinni uppskeru.
Sjáið til að aldrei verði tómt í fóðurtroginu og leyfið þeim að taka eins mikið af fóðri og þær vilja.
Gefið minnst 1 kg af fóðurdegi.
Skipta um botn ef þarf.
K. September.
Fóðrun líkur.
Búið gert klárt fyrir veturinn.
Gamlir svartir rammar bræddir .
Tiltekt og geyma kassa og annað dót á köldum þurrum öruggum stað, múshelt, og hafa dagblað á milli kassa með vaxrömmum í svo vaxmölurinn komist ekki á milli.
L. Október-desember
Ganga frá kössum og römmum.
Lesa sér til um býrækt.
Skipuleggja komandi misseri.
Fyrsta skoðun að vori.
Ósað lítillega í flugopið. Þak og allt sem hylur ofanfrá er losað varlega. Ósað lítillega ofan á býflugurnar.
Þegar skoðað er ofan í búið reynir maður að gera sér grein fyrir eftirfarandi:
Á hve mörgum römmum sitja býflugur ?
Er búið stórt (fjölmennt) eða lítið ?
Er hegðun býflugunum eðlileg ?
Eru þær rólegar, pirraðar eða sljóar?
Er skítur á efri listum rammana ?
Er mygla í hornum kassans eða annarstaðar (oft er mygla á botni og eða neðstakassa)?
Fyrsta, ysta rammanum, þar sem ekki sitja býflugur, er lyft varlega upp.
Hvernig lítur ramminn út?
Er hann myglaður ? (taka hann þá).
Útskitinn ? (fjarlægja hann þá).
Hve mikið fóður er í honum ?
Annað sem skiptir máli ?
Maður lyftir 1-2 römmum upp í viðbót, sem ekki eru með ásitjandi flugum og setur þá við hliðina á kúpunni og skoðar þá á sama hátt og ofan .
Næstu ramma sem á sitja býflugur eru fluttir 1 og 1 til hliðarinnar sem nú er tóm, skoðar niður á milli rammana, dregur þá til en lyftir þeim ekki upp nema veður leyfi.
Hve mikið fóður er í römmunum –þungir eða léttir ? fullur rammi inniheldur uþb 1,5 kg.
Eru lok komið á ungviða hólfin (hjúpað hólf)? Á hver mörgum römmum er ungviði ?
Sést drottningin eða egg ?
Annað sem skiptir máli ?
Eru tómir fóðurrammar í búinu ? flytjið þá fulla ramma næst ungviðaklasanum eða setjið fóðurramma sem þið eigið frá því í fyrra í stað þeirra tómu. Sérlega mikilvægt að setja ramma með frjókorni í sem næst ungviðarömmunum eða gefa frjódeig (Neopollen).
Ef búið situr á fleiri kössum skoðið þá alla á svipaðan hátt ef veður leyfir- þetta er líka hægt að gera við seinna tilfelli.
Ef margir tómir rammar eru í búinu er óvitlaust að þrengja að þeim með því að taka burtu alla tóma ramma og þá
sem lítið fóður er í og fjarlægja 1 kassa. Ef búið hefur setið á 3-4 kössum í vetur og allir rammar eru sneisafullir
af fóðri og ungviði þá er óvitlaust að taka 1 kassa (10 ramma) fullan af fóðri frá þeim og eiga til fyrir bú með litlu fóðri eða til mögru áranna.
Með því að fækka kössum hjálpar það þeim að halda hærri hita í kúpunni. Verið bara viss um að búið hafi nægan forða eftir –ca 15 kg.
Áður en þið lokið búinu gefið frjódegi ofan á efstu rammana.
Drottningarafleggjara gerir maður ekki eftir síðustu vikuna í júní, vegna þess að annars nær hvorki afleggjarinn né móðurbúið að stækka fyrir veturinn ef maður vill fjölga búum. Fyrir júní lok er þetta góð aðferð að aftra svermtilhneigingu.
Taktu nýjan botn, kassa og þak. Taktu minnst 4 og allt að tæplega helming ramma með ungviði í og helming fóðurrammanna frá ungviðakassanum og settu þá í nýja kassann. Settu ungviðarammana í miðjuna og fóðurrammana til beggja hliða. Hristu auk þess býflugur frá nokkrum (5) ungviða- römmum úr móðurbúinu í nýja kassann. Þetta er til þess að koma í staðinn fyrir eldri býflugur sem fljúga til baka í móðurbúið. Fjarlægðu öll drottningarhólf í drottningarafleggjaranum. Sjá Kassa 3 hér að ofan hvernig á að sinna móðurbúinu.
Ef þú villt ekki fjölga búum setur þú kúpuna með afleggjaranum í við hliðina á móðurbúinu (ca ½ m frá ) með flugopin í sömu átt. Við lok sumars sameinar þú afleggjarann og móðurbúið með dagblaðssíðu aðferðinni (Dagblaðssíða með nokkrum götum í er sett ofan á móðurbúið að kvöldi, nokkrir dropar anisolíu og afleggjarinn settur ofan á.
Ef þú vilt fjölga búum geturðu sett afleggjarann hvar sem er í býgarðinn hjá þér. Ef þú setur hann minnst 2 km í burtu þarftu ekki að hrista aukalega býflugur af ungviðarömmum úr móðurbúinu (eldri býflugur fljúga þá ekki heim í sama mæli svo langt undan).
Vertu viss um að gamla drottningin fylgi með í afleggjarann. Ef þú finnur hana ekki : Sópaðu (ekki hrista, þú gætir drepið drottningalirfu í drottningahólfi sem þú ætlar að leyfa móðurbúinu að ala upp) allar býflugur á helming af ungviða- römmunum og helming af fóðurrömmunum, niður í móðurbúið og settu þessa „býtómu“ ramma í kassa ofaná móðurbúið með drottningar grind á milli. Í staðinn fyrir ramma sem þú tókst úr móðurbúinu seturðu helst útbyggða ramma til hvorrar hliðar við þá ramma sem eftir eru í móðurbúinu. Eftir nokkra tíma hafa býflugur flutt sig upp í efri kassann. Taktu efri kassann og settu hann til hliðar. Flyttu nú alla ramma (með ungviði og fóðri í, ekki tómu rammana) úr neðri ungviða kassanum í móðurbúinu yfir í afleggjara kassann og hristu allar býflugur á öðrum römmum í neðri kassanum á móðurbúinu niður í afleggjarann. Nú ætti gamla drottningin að vera í drottningarafleggjaranum. Eldri býflugur fljúga til baka í móðurbúið. Ef þú getur er jafnvel betra að flytja neðri (sá sem var undir drottningagrindinni) ungviðakassann yfir á nýja botninn. Efri ungviðakassinn sem þú settir til hliðar er nú sett yfir á botn móðurbúsins. Vert viss um bæði búin séu með nóg fóður. Fóðraðu þetta nýja bú með sykurlausn og frjódeigi upp á 3 kassa, þannig þegar þörf er á 4 kassanum tekurðu burt fóðurtrogið og leyfir þeim að setja hunang í rammana í efsta kassanum-það verður þín hunangsuppskera.
Hvernig gerir maður ?
AFLEGGJARA:
Byrja á að finna og fanga drottninguna. Taktu 5 ramma með ungviði, helst ramma þar sem ungviðið er að byrja klekjast, með þeim býflugum sem sitja á römmunum og settu þá í nýja kúpu. Taktu 2-3 fóðurramma og settu þá öðru megin við ungviðarammana. Ramma með vaxplötum setur þú hinu megin við ungviðarammana. Hristu býflugur frá 4-5 ungviðarömmum úr móðurbúinu niður í nýja afleggjarann til að koma í stað þeirra eldri býflugna sem fljúga heim í móður búið. Passaðu að drottningin verði eftir í móðurbúinu. Ef ný drottning eða lokað drottningarhólf afleggjarans á að koma annarstaðar frá, þarftu að fjarlægja öll hugsanleg drottningarhólf á römmum afleggjarans. Ef þú ætlar ekki að fjölga búum seturðu afleggjarann til hliðar við móðurbúið. Sjáðu hér að ofan í flæðiskemanu hvernig þú heldur áfram með afleggjarann í : AÐFERÐ1 og AÐFERÐ 2. Ef þú finnur ekki drottninguna gerðu þá á eftirfarandi hátt: Settu eftirfarandi ramma í nýjan kassa, 5 með hjúpuðu ungviði, 2 með fóðri 1 með vaxplötu og 2 með opnu ungu ungviði. Hristu allar býflugur af römmunum fyrst niður í móðurbúið. Ef þú ætlar að nota drottningarhólf á þessum römmum sópaðu þá býflugurnar af, annars fjarlægir þú öll drottningarhólf og setur nýja drottningu í afleggjarann. Þú setur síðan þennan nýja kassa ofaná móðurbúið með drottningargrind á milli. Eftir nokkra tíma hafa býflugur skriðið upp í efri kassann, taktu hann þá og settu á nýjan stað en taktu rammana með opna ungviðinu (hristu fyrst býflugurnar af þeim í afleggjarann) og settu þá aftur í móðurbúið en setur ramma með vaxplötum í afleggjarann í staðinn.
Ofan nefndum afleggjurum er lýst í sambandi við svermstjórnun. Auðvitað er hægt að gera afleggjara án drottningar í júní og láta hann ala upp eigin drottningu eða að setja til nýja drottningu eða til að koma í veg fyrir sverm.