Ætlar Búið að Sverma ?

Samantekt: Egill R. Sigurgeirsson og uppfært apríl 2025

 

Hvað er svermur?

Svermur á ferð og flugi

Býflugna svermur er náttúrulegt fyrirbæri sem á sér stað þegar þernurnar upplifa að rýmið í kúpunni er orðið of lítið fyrir styrk (fjölda) þeirra. Svermur er mikilvægur hluti af lífsferli býflugna og  nauðsynlegur fyrir fjölgun tegundarinnar,  að viðhalda stofninum og nema nýjar lendur.

Undirbúningur búsins er að þær ala upp nýjar drottningar, oftast um 7 drottningahólf. Það er eitt af megin markmiðum býræktar að koma í veg fyrir að búið svermi. Eitt stórt bú gefur meira hunang en 2 meðalstór, þar að auki safna býflugur ekki nektar í eins miklu mæli síðustu vikurnar áður en svermur fer út. Nýja drottningin tekur sér 16 daga til að klekjast og er ekki farin að verpa fyrr en 2 vikum eftir að hún skríður úr drottningarhólfinu. Þannig „tapast“ varptími og býflugna fjöldi. Oft eykst svermáhuginn ef rignir í nokkra daga eftir tímabil með góðum aðdráttum fóðurs. 

Þó að það geti verið áhyggjuefni fyrir býræktendur og geti skapað vandamál ef svermurinn sest að á óvelkomnum stöðum, er þetta náttúruleg hegðun.

Á Íslandi gerist þetta venjulega snemma sumars og alveg fram í september þegar aðstæður eru hentugar. Stór hluti búsins ásamt drottningunni fara af stað til að mynda nýtt bú á öðrum stað. Einnig getur orði raðsvermur þega nýklaktar drottningar fara ásamt sílækkandi fjölda þerna út í sverm jafnvel all að 7 svermar alls.

Hér er stutt yfirlit yfir ferlið:

  1. Undirbúningur: Þernurnar ala upp nýjar drottningar og byrja að  þróa með sér svermhvötina.

    Svermur hjá Hafberg (mynd Egill)
  2. Svermur: Þegar nýja drottningin krýpur úr sínu drottningahólfi, fer gamla drottningin ásamt stórum hluta þerna úr kúpunni. Þær mynda klasa saman, oft í tré eða á öðrum stað í nágrenninu, meðan skátaflugurnar leita að hentugu nýju heimili.

  3. Leit að nýju heimili: Svermurinn helst í klasa í ákveðinn tíma, stundum í nokkra klukkutíma eða jafnvel í nokkra daga, meðan skátaflugnurnar leita að stað sem uppfyllir þarfir þeirra, eins  og autt holrými eða nýja kúpu.

  4. Stofnun nýs bús: Þegar skátaflugnurnar finna hentugan stað, tekur svermurinn flug aftur og sest að á nýja staðnum. Þar fara þernurnar strax í að byggja nýjar vaxkökur, sækja fæði og stofna nýja búið.

 

 Það er eitt af meginmarkmiðum býræktar að koma í veg fyrir að búið svermi, því 1 stórt bú gefur meira hunang en 2 meðalstór, þar að auki safna býflugur ekki nektar í eins miklu mæli síðustu vikurnar áður en svermur fer út.

Nýja drottningin tekur sér 16 daga til að klekjast og er ekki farin að verpa fyrr en 2 vikum eftir að hún krýpur úr drottningarhólfinu. Þannig „tapast“ varptími og býflugnafjöldi. Oft  eykst svermáhuginn ef rignir í nokkra daga eftir tímabil með góðu aðdráttum (þegar býflugur hafa safnað blómasafa í gríð og erg).

Að hindra sverm í stuttu máli:

Svermur hjá Hafberg, nærmynd (mynd Egill)

  • Vertu alltaf á undan býflugunum þannig að nægt rými sé til staðar fyrir varp drottningar og söfnun hunangs.
  • Muna að 1 fullur rammi af ungviði fyllir 3 ramma þegar þernurnar eru klaktar. 
  • Sjáðu til að ungþernurnar (húsþernurnar) hafi nóg fyrir stafni. Þær séu aldrei verkefnalausar –þær hafi ungviði að fóstra (mata) og -milliveggi að byggja vax á.
  • 7/10 reglan
    • Þegar ungviði er komið í 7 af 10 römmum í kassanum þarf búið nýjan kassa. 
    • Þegar 70% römmum í hunangskössunum eru fullir af hunangi þarf búið nýjan kassa.
    • Þannig að ef bæði skilyrði að ofan eru uppfyllt gæti búið þurft 2 nýja kassa en líklega betra er að bíða 1 viku áður enn seinni kassinn er settur á.
    • Hafa unga drottningu af svermtregum stofni í búinu (ekki eldri en 3 ára því pheromen framleiðsla hennar minnkar hratt eftir þann aldur og þá þarf búið minn hvata til að sverma).

Svermur hjá Möttu sem fór ekkert lengra og settist að í grenitré nokkra metra frá búinu en uppgötvaðist ekki fyrr en í október. (mynd Egill)

 

 

 

 

 

Vægklipping:

Að klippa ¼ af öðrum væng drottningar kemur ekki í veg fyrir svermhvötina né að búið fari út í sverm. Það eina sem býræktandinn vinnur á því er að hann getur þá seinkað innliti í  búið upp í 14 daga, því drottningin dettur á jörðina þegar hún reynir flug en í versta falli mynda þernurnar nýtt bú undir því gamla ef drottningin nær að klifra þangað. Búið fer samt út í sverm þegar ný drottning klekst  sama eða einhverjum dögum seinna en sú gamla liggur í versta falli dauð fyrir framan búið.

Á Íslandi er algengast að bú svermi í seinni hluta júní en getur þó gerst á hvaða tíma sumars sem er (nokkrir

Vængstýfing (mynd Egill)

býræktendur hafa fengið sverm í september). Oftast er því þannig farið að ef búin hafa komið vel undan vetri þá geta þau stækka ótrúlega hratt á vorin og fyrri hluta sumars og þetta eykur verulega hættuna á svermi. Ólíklegra er að afleggjarar/býpakkar sem keypt eru að utan, svermi sama sumar (hefur þó gerst hjá einum í september), því það má líta á afleggjara/býpakka sem sverm. Þetta hefur þó gerst, sem sýnir mikilvægi þess að fylgjast vel með

Hér er næstum 1/2 vængs stýfður(mynd Egill)

því plássi sem búið hefur til varps og hunangssöfnunar, hafa það heldur rýmra en minna en þó ekki of rúmt þá er erfiðara fyrir búið að halda 35°C hita á ungviðinu.

 

 

 

 

 

 

Það þarf að fylgjast með hvort drottningin hafi lagt egg í drottningarhólfin og flugurnar hafi sett drottningarhunang (royal jelly) í botn hólfsins. Ef svo er þá er best að fjarlægja þessi frjóu drottningarhólf og gera þá eitt af þrennu:

  1. Bæta við nýjum kassa ofan á til að auka plássið.
  2. Setja nýjan kassa ofan á og flytja upp í þann kassa 2-3 ramma með ungviði og setja fyrir miðju í efsta kassann og færir rammana með ungviði saman í neðri kassanum, þannig að þeir lenda beint upp af hvor öðrum og fylla með tómum römmum til hliðanna. Þetta má í raun gera við öll bú sem manni finnst stækka ört.
  3. Stundum er hægt að kljúfa ungviðaklasann á þann hátt að settir eru nýir rammar (bara með vaxmilliveggjum), 2 til 3 hvern ramma, niður á milli ungviðisins (ungviðaklasinn þannig klofinn í tvennt eða þrennt), það verður þá að taka ramma burt frá hliðum. Þetta er gert ef búið sýnir verulegan svermhvata eða ekki nægjanlega sterkt til að taka við heilum viðbótarkassa.

     

Svermhólf eru að jafnaði 5-10 og sitja á neðri brúnum eða til hliðar á römmunum

Hægt er gera allt þrennt að ofan ef mörg drottningarhólf eru til staðar en muna samt að fjarlægja drottningarhólfin ( vertu fyrst viss um að gamla drottningin sé til staðar í búinu).

 

Einnig er góð aðferð til að koma í veg fyrir svermáráttu er að taka 1-2 ungviðaramma, úr stóru/stækkandi búi, með ungviði sem er byrjað að krjúpa út og styrkja minni bú með þessum römmum. Varast ber að setja meira en 1 ramma í einu í lítil bú því þau verða að geta haldið hita á ungviðinu. Þetta má endurtaka á 7-14 daga fresti svo lengi sem þurfa þykir. Það verður þó að muna að setja nýja ramma í staðinn í stóra búið og að stóra búið þoli þessa "blóðtöku".

 

Einnig má flytja búið sem sýnir mikinn svermáhuga á nýjan stað og setja á gamla staðinn lítið bú með drottningu því allar sóknarflugurnar sækja heim á gamla staðinn og styrkja það bú en svermáhuginn hverfur  oftast við skort á sóknarflugum í móðurbúinu. Með því að færa drottninguna með ungviðarömmum og þernum (húsflugum) er maður að vissu leiti að líkja eftir svermi þ.e. drottningin fer.

Það verður að skoða í búið eftir viku og ef búið hefur byrjað að ala upp nýjar drottningar (frjótt drottningarhólf) er best að skipta búinu í tvennt þannig að gamla drottningin er tekin ásamt stórum hluta búsins (þerna og ungviði) og sett á annan stað.

Gott er að nýta bú sem hefur hafið svermundirbúning til að búa til 1 eða fleiri afleggjara.

Það má aldrei fjarlægja öll drottningahólf nema að þú sjáir drottninguna. 

Ef búið svermar.

Ef svermur er farinn út þarf að fanga hann sjá- Taka inn sverm. Þessi reyndist vera 2,5 kg að þyngd með ófrjórri drottningu.

Þá þarf að fara í gegnum móðurbúið því svermur nr 2-7 (raðsvermur, eins og Tómas komst að orði) gætu farið út stuttu seinna eða einhverjum dögum síðar..

Það er næsta víst að gamla drottningin hefur farið með 1. sverminum og gerist það á 9 degi eftir að eggi er verpt í nýtt drottningarhólf, þá loka býflugur drottningarhólfinu og verðandi drottning verður að púpu, þá fyrst fer búið út í sverm ef veður leyfir.

 Þess vegna er svo mikilvægt að skoða reglulega í búið á minnst 8 daga fresti svo maður missi ekki af drottningarhólfum.

Ef fleiri drottningarhólf eru í búinu á ýmsum stigum er næsta víst að búið ætlar sér að sverma aftur og ekkert getur komið í veg fyrir það nema við förum rétt að.

  • Skipta búinu í 2-4 jafnstóra afleggjara með jafnmörgum ungviðarömmum í hverjum afleggjara og passa að 2 drottningarhólf verði eftir í hvoru, hin fjarlægjum við. Þetta er gert til að vera öruggur um að minnst 1 drottning klekist en líkur á nýjum svermi úr afleggjaranumeru vissulega til staðar en mjög lítill.
  • Móðurbúið er skilið eftir á sínum stað með 1 ungviðaramma og 2 drottningarhólfum og lítið af býflugum því safnflugurnar sem koma heim á gamla staðin fylla það nægjanlega.
  • Einnig má taka meira af býflugum í annað búið og skilja hið minna eftir á gamla staðnum.

Alltaf á að skoða í ný bú eftir 1 viku til að kanna hvort ungdrottningin hafi byrjað varp.

Hafa samband