Stjórn félagsins samanstendur af þrem stjórnarmönnum og einum varamanni.
Í stjórn í dag eru Egill Rafn Sigurgeirsson formaður, Valgerður Auðunsdóttir ( félagi frá 2011) gjaldkeri, Herborg Pálsdóttirhafa ( félagi frá 2011) ritari og Þorsteinn Sigmundsson ( félagi frá 2002 ) varamaður í stjórn. Stjórn er skipuð til tveggja ára í senn á aðalfundi sem haldinn er í apríl ár hvert. Kosið er sérstaklega í formannsembættið en aðrir í stjórn skipta með sér verkum. Egill sem má telja upphafsmann Býflugnaræktunar á Íslandi hefur verið formaður félagsins frá stofnun þess en síðastliðin 5 ár hefur hann á aðalfundi gefið kost á sér til áframhaldandi setu ef enginn annar býður sig fram í formanninn.
Í félaginu eru nú skráðir um 150 félagsmenn. Félagsmenn hafa verið hvattir til að stofna faghópa inna félagsins um málefni sem brenna á félagsmönnum eins og til dæmis fjölgun búa í landinu, ræktun drottninga, landshlutafélag og fræðslumál, en sá hópur hefur verið starfandi um skeið, gert leiðbeiningar, bækling, haldið kynningar og sinnt fræðslu bæði fyrir félagsmenn og aðra sem hafa óskað eftir því, auk þess að taka á móti erlendum gestum og kynnt býrækt hér á landi. Þetta er allt gert af miklum áhuga og í nafni félagsins.
Fræðslunefnd