BÝRÆKT Á SPÁNI

BÝRÆKT Á SPÁNI

16. september 2017. Viðbætur des ´23.
Spánn hefur langa sögu um býflugnarækt. Steinaldarfólk málaði hunangstöku sína á hellisveggi fyrir 3000 -8000 árum síðan. Til þessa dags hefur býrækt spilað mikilvægan þátt í landbúnaðarsögu Spánar. Í dag eru ýmsar aðferðir notaðar í býrækt allt frá nútíma aðferðafræði til aldagamalla aðferða sjálfsþurftarbúskapar með kúpum úr berki.
Það eru um 2,4 millj. býflugnabúa á Spáni, þar af eru um 67% í eigu atvinnu- eða annarra fagmanna í greininni. Um 26 000 býræktendur eru í landinu og þar af eru 6 000 sem lifa eingöngu af býrækt (atvinnubýræktendur). Það eru líklega fleiri bú í landinu en vegna skattálagningar er líklegt að margir tilkynni ekki bú sín.Af atvinnubýræktendum er áætlað að 60% séu faralds býræktendur sem elta blómgun hinna ýmsu tegundum með búin sín. Heildarframleiðsla hunangs er um 30.000 tonn á ári og algengasta hunangstegundin eru blanda frá hinum ýmsu blómum. Mikilvægasta uppsprettan er frá sólblómum, en minna frá sítrusávöxtum (aðallega appelsínu trjám), rósmarín, blóðbergi og beitilyngi. Evrópa er stærsti kaupandi af hunangi í heiminum.


 Mikið af spænsku hunangi er selt til Evrópu og 80% af hunangi sem selt er þar er af spænskum uppruna. Mest af hunanginu sem flutt er út frá Spáni fer til Þýskalands, en eftir fylgja Bretland, Frakkland og Ítalía. Þrátt fyrir þetta er hunang flutt inn til Spánar og mest af þessu kemur frá Argentínu, Kína og Kúbu. Á undanförnum árum hefur verið hert mjög á reglum og gæðamati á hunangsframleiðslu. Athuganir og greiningar eru gerðar á hunangi/pakkningunum til að tryggja að lög um hollustuhætti sé fylgt, merkingin er rétt, lögleg og viðeigandi og að geymslu skilyrðum sé rétt stjórnað.
Varroa er alvarlegur sjúkdómsfaraldur í spænskum býflugum og þegar hann kom til Spánar seint á níunda áratugnum / byrjun tuttugustu aldar dró mjög úr býrækt. Mikið af eitri er notað gegn mítlinum. Mikil áhersla er nú lögð á lífræna framleiðslu hunangs með ESB styrkjum sem eru í boði fyrir býræktendur sem nota lífrænum aðferðir. Það er jafnvel heil deild við háskólann í Cordoba tileinkuð framþróun lífrænnar framleiðslu.

Aðrir sjúkdómar eru minniháttar í samanburði við varroa en eru allir til staðar; amerísk og evrópsk býpest (AFB, EFB), sveppasýkingar, vaxfiðrildi og nosema. Loftsekkjamaur finnst einnig hér, en valda litlum ef einhverjum vandamálum. Margir –sérlega óskráðir býræktendur verða fyrir miklum missi vegna skordýraeiturs. Spænska “býflugan” er “nokkuð árásargjörn” og stinga léttilega við minnstu truflun við búið. Þær eru vel aðlagaðar að landi og veðurfari og eru lítt svermgjarnar. Apis mellifera iberica er svört, lítil og snögghærð. Hún er millistig í þróun býflugna frá Norður-Afríku, Apis mellifera saharensis-intermissa og Apis mellifera mellifera í Norður-Evrópu.

Það má segja að Spánn sé leiðandi í býflugnarækt í Evrópu, með tæplega 16% af heildarframleiðslu hunangs og með 2,86 milljónir býflugnabúa, á undan Frakklandi (10,4% og 1,64 milljónir), Grikkland (19,1% og 1,58 milljónir) og Ítalíu (8,4% og tæpar 1,32 milljónir). Þar að auki eru 80% og tæplega 1,97 milljónir býflugnabúa í eigu atvinnubýræktenda, hæsta hlutfall í ESB og næstum tvöfalt svæðisbundið meðaltal, sem er 40,5%.

Þessi gögn endurspeglast í áhugaverðri skýrslu sem ber yfirskriftina „Hagvísar í býflugnarækt árið 2017,“ sem landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út og gefur til kynna að fjöldi býflugnabúa hafi náð jafnvægi á undanförnum árum, þó þeim hafi fjölgað um 20% á sl. áratug.

Ef við lítum aftur á móti, á fjölda býræktenda, þá er Spánn með tiltölulega fámennan hóp eða  23.816, þ.e. 3,93% af 606.082 í ESB, mun færri en 116.000 (19,14%) í Þýskalandi; 62.575 (10,32%) í Póllandi; 50.000 (8,25%) á Ítalíu; 49.486 (8,16%) í Tékklandi; 41.560 (6,86%) í Frakklandi og 37.888 (6,25%) í Bretlandi.

Um 22,5% spænskra býræktenda eru atvinnumenn, þ.e. 5.361, mun hærra en meðaltalið í ESB, sem er aðeins 5.20% af heildinni, aðeins á eftir Grikklandi (39.53% og 9.716) en á undan Ítalíu (5.357 og 10.71%) og öðrum ESB lönd.

Ýtarlegar upplýsingar frá 2018.

Hafa samband